Software Engineer
Mótaðu framtíðina Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs.
Mótaðu framtíðina
Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina.
Upplýsingatæknisérfræðingur (Iðnstýringar)
Við leitum að öflugum einstaklingi til starfa við forritun, þróun og rekstur iðnstýringa. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd sjálfvirkni, PLC-forritun og skjámyndakerfum fyrir framleiðslu.
Við vinnum aðallega með Rockwell Automation / Allen-Bradley búnað og lausnir og er reynsla af því umhverfi mikill kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.
Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið anna.kristmundsdottir@alcoa.com .
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.
Posted October 30, 2026